Breyta skráningu

Vantar skjámynd

Breyta skráningu:

  • Farðu með bendilinn yfir viðkomandi einingu
  • Smelltu á Opna einingavalmynd og veldu Breyta skráningu
  • Einingavalmynd - breyta skráningu 

 

A. Tegund

  • Eplica síðueining (eining úr einingasafni Eplica)
  • Sérgerð síðueining (eining sem hefur verið sérsmíðuð, annaðhvort af Hugsmiðunni eða viðskiptavini)
  • Sérgerð keðja (keðja eða xml eining sérsmíðuð af Hugsmiðjunni eða viðskiptavini)
  • HTML innskot: HTML texti eða framsetning, gögn sem sett eru í HTML innskot vistast ekki í grunn og eru einungis til í viðkomandi HTML innskoti (HTML innskot eru sett inn með því að smella á HTML flipann og setja inn þar inn HTML)
  • Portlet (ath)
  • Vefþjónusta (Vefgátt til að tala við aðrar hugbúnaðarlausnir)
  • Annað (óskilgreindar einingar)

B. Síðueining

Hér má velja einingu úr lausnasafni Eplica. Velja má úr sprettiglugganum eða smella á "form" gluggann til að fá ýtarlegri lista.

C. Finnst ekki í leit á vefnum

Með því að haka í þennan reit verður innihald þessarar einingar útilokað frá niðurstöðum leitar á vef.

D. Virk

Stjórnar því hvort eining birtist á vef (einingar sem að eru teknar úr birtingu með þessum hætti má nálgast með því að smella á yfirlit yfir síðuviðbætur)

E. Staðsetning

  • Staðsetning á vef (síða sem uppruni eining er, hvort sem að hún erfist eða birtist á einum stað)
  • Staðsetning á síðu (einingasvæði, ef verið er að setja inn t.d. einingu í miðju svæði síðunar þá myndi staðsetningin vera "content")
  • Röðunarnúmer (röðun innan staðsetningarsvæði einingar)
  • Erfist (eining erfist niður allar undirsíður viðkomandi síðu)
  • Sniðmát



Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica