Skjalaskráning
Skrá skjal í Skjalasafn:
- Smelltu á Sækja til að velja skjal
- Hægt er að velja 1. eða fleiri skjöl með því að smella á valið skjal, halda má inni Shift takkanum á lyklaborðinu og velja annað skjal fyrir ofan eða neðan valið skjal. Einnig má halda inni Ctrl til að velja fleiri skjöl. Þegar skjölin hafa verið valin, smelltu á Open
- Smelltu á OK
Næsta skref er að skrá skjölin og setja þau í Skjalaflokka. Skjöl sem að eru send í skráningarröðina birtast þar þangað til að þau eru fullskráð eða að þeim er hent.
- Fylltu inn Nafn (skjalið fær nafn sjálfkrafa og er sótt af "kerfisnafni" skjals, ekki er nauðsynlegt að setja inn annað nafn)
- Settu inn Alt Tag (Alt Tag er notað fyrir Skjálesara og er hugsað sem stutt lýsing á mynd)
- Veldu Skjalaflokk
- Settu inn Lýsingu (ekki nauðsynlegt)
- Smelltu á Skrá til að fullskrá skjalið (smelltu á Eyða til að henda skjali)
Skjöl í sama skjalaflokki mega ekki innihalda sama skráningarnafn. Ef að skráningarnafn er til fyrir í skjalasafninu hefur þú möguleika á að yfirskrifa skjalið sem fyrir er (ný útgáfa skjals kemur í staðinn) eða að breyta heiti skráningarnafns (skjalið sem að fyrir er helst ósnert í skjalasafninu)